Stuðningsyfirlýsing frá Landvernd

Jun 11, 2026

Landvernd hefur sent út stuðningsyfirlýsingu við heilbrigðiseftirlit á Íslandi vegna fyrirhugaðra breytinga sem kynnt voru í september sl og eru til meðferðar Alþingis og tekur undir með Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða: „.... Landvernd tekur undir með Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða um að alvarlegt sé að draga úr eftirliti með efnavörum, hollustuháttum, umhverfisgæðum og mengandi starfsemi í náttúru Íslands. Lélegt eftirlit, ásamt því að fylgja ekki eftir fyrirbyggjandi aðgerðum um mengunarvarnir, veldur manngerðri náttúruvá.“ 

Takk fyrir Landvernd !

Sjá nánar grein eftir Davíð A Stefánsson, varaformann Landverndar sem birt er á vísir.is.

Mann­gerð mengun í Varm­á kallar á aukið eftir­lit með jarð­borunum fremur en að dregið sé úr því