Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins?
Jun 08, 2026
Stjórn Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi sendi frá sér skoðanagrein þar sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er gagnrýnd fyrir að sýna starfsfólki heilbrigðiseftirlitsins ekki þá virðingu sem hún boðar í stjórnmálum. Áform ríkisstjórnarinnar um að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafa skapað mikla óvissu um framtíð og störf starfsmanna heilbrigðiseftirlitsins. Höfundar benda á að raddir og staðþekking starfsfólksins hafi verið virtar vettugi í ferlinu og kalla eftir því að stjórnvöld sýni virðingu og traust í verki með því að eiga skýrt samtal og veita svör um framtíðina.
Lesa má greinina inn á vísi hér:
Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins?
